|
Ég heiti Jón Svanur Jóhannsson og nemi á 1. ári
í Kennaraháskóla
Íslands, þar sem ég stunda fjarnám í Grunnskóladeild.
Vefsíða þessi fór upphaflega í loftið sem verkefni í Upplýsingatækni,
sem er áfangi á haustmisseri 2004, og af þeim sökum er hún kannski örlítið
fátækleg efnislega í upphafi. Það er þó markmið mitt og stefna að
bæta verulega við efni hennar eftir því sem fram líða stundir.
Ég er fæddur og uppalinn Reykvíkingur, en fyrir tæpum
tveimur árum fluttist ég búferlum til Eskifjarðar og hóf störf sem
leiðbeinandi við Grunnskólann á Eskifirði. Hér bý ég ásamt konu
minni og fjórum börnum í góðu yfirlæti og mikilli hamingju.
|