Sauðárkrókur
,Heim Upp

 

 

Sauðárkrókur er stærsti þéttbýlisstaðurinn í Skagafirði. Stendur hann við botn Skagafjarðar og skammt austar renna Héraðsvötn. Hann varð löggiltur verslunarstaður 1857 og fékk kaupstaðarréttindi 1947.  Íbúar eru nú eru um  u .þ. b.  2800 manns.  Aðalatvinnuvegir eru verlsun , útgerð og iðnaður og ber það að nefna Steinullarverksmiðjuna, skinnverkun, fiskiðnað, mjólkursamlag og rækjuverksmiðju.  Bærin er mikið þjónustusvæði fyrir sveitirnar í kring en í Skagafirði öllum er um 4400 íbúar.  Gott menningarlíf er á Sauðárkróki og má þar nefna öflugt leikfélag sem er með sýningu nú gangi sem heitir Galdrakarlinn í Oz,  tónlistarskóla auk Héraðasskalasafns Skagafjarðar.  Það er eitt besta Skjalasafn á landinu.

Sauðárkrókur stendur fyrir sæluviku einu sinni á ári.  Er þá mikið um að vera fyrir alla  ýmsar uppákomur m.a. er  þá leikfélagið með leiksýningu og margt fleira í gangi.  Endar sæluvikan á hinni landsfrægu Sönglagakeppni kvenfélagsins og með góðu balli á eftir.

Heimildir:  Vegahandbókin

                   http://www.northwest.is/saudarkrokur.asp

Þórey Gunnarsdóttir

uppfært Nóvember 2007